FRÉTTIR

Nýr framkvæmdastjóri Landssambands veiðifélaga

Stjórn Landssambands veiðifélaga hefur ráðið Jóhann Helga Stefánsson í starf framkvæmdastjóra. Hann tekur við starfinu af Gunnari Erni Petersen 1. september næstkomandi. Jóhann Helgi hefur frá unga aldri stundað og haft brennandi áhuga á stang- og skotveiði. Hann var stjórnarmaður í Félagi ungra í stang- og skotveiði og hefur einnig

Nánar ⇀

Aðgerðir Fiskistofu vegna eldislaxa

Hér að neðan eru leiðbeiningar frá Fiskistofu vegna veiðiaðgerða stofnunarinnar og veiðifélaga vegna eldislaxa. Landssambandið ítrekar allt sem fram kom í fyrri færslu um málið, sem finna má hér, og einnig að veiðifélög skulu ávallt hafa Fiskistofu með í ráðum varðandi aðgerðir. Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri Landssambands veiðifélaga í síma

Nánar ⇀

Aðgerðir vegna eldislaxa

Hér að neðan er að finna upplýsingar um stöðu mála vegna stroks eldislaxa sem hafa nú þegar fundist í Haukadalsá, Vatnsdalsá í Húnavatnssýslu, Helluá í Skagafirði og sést í nokkrum öðrum ám. Landssamband veiðifélaga (LV) mun halda áfram að upplýsa veiðifélög og leiðbeina með aðgerðir. Umfang Nú þegar hafa 10

Nánar ⇀

Áskorun til veiðifélaga og veiðimanna

Landssamband veiðifélaga (LV) hefur nokkrar áhyggjur af laxgengd það sem af er sumri. Þó enn sé töluvert eftir af göngutíma virðast fyrstu vikur veiðitímabilsins gefa til kynna að laxgengdin verði undir meðallagi. Taka ber fram að slíkt getur breyst snögglega og eru fordæmi fyrir því að smálax skili sér seint,

Nánar ⇀

Laxveiðin fer vel af stað

Laxveiðin fer vel af stað í þeim ám sem þegar hafa opnað. Norðurá er komin í 47 laxa eftir mjög góða byrjun og er það fimm löxum meira en á sama tíma í fyrra. Þverá í Borgarfirði var komin í 18 laxa í gær eftir tveggja daga veiði og þegar

Nánar ⇀

Landssamband veiðifélaga leitar að framkvæmdastjóra

Landssamband veiðifélaga leitar að metnaðarfullum og framsýnum einstaklingi í starf framkvæmdastjóra. Leitað er að öflugum einstaklingi í fullt starf þar sem reynir m.a. á samskiptahæfni og frumkvæði. Um áhugavert starf er að ræða þar sem viðkomandi getur haft raunveruleg áhrif á framtíð íslenskra veiðimála og verndun ferskvatnsstofna. Verkefni eru fjölbreytt

Nánar ⇀

Laxveiðin hafin! Fyrstu veiðitölur sumarsins

Þegar þetta er skrifað er laxveiðin hafin í Urriðafossi í Þjórsá, Norðurá í Borgarfirði og Blöndu. Fyrsti nýrenningur sumarsins veiddist þó 25. maí síðastliðinn þegar veiðimenn voru við sjóbirtingsveiðar við Skugga í Hvítá í Borgarfirði. Veiði í Norðurá hófst í gær, 4. júní, og komu 17 laxar á land. Verður

Nánar ⇀

Fréttabréf Landssambands veiðifélaga 14. maí 2025

Fréttabréf Landssambands veiðifélaga var sent út í dag. Þar er fjallað um nýafstaðinn aðalfund LV, mikilvæg tilmæli til veiðifélaga, nýja skrifstofu LV, ályktanir um sjókvíaeldi o.fl. Hægt er að nálgast fréttabréfið með því að smella hér.

Nánar ⇀

Ósk um tilboð í leigu á veiðirétti í Unadalsá (Hofsá) í Skagafirði

Veiðifélag Unadalsár (Hofsár) óskar eftir tilboðum í leigu á öllum veiðirétti félagsins í Unadalsá fyrir veiðitímabil áranna frá og með 2025 til og með 2029 með almennu útboði. Útboðsgögnin fást afhent með rafrænum hætti hjá Landssambandi veiðifélaga. Vinsamlegast hafið samband á netfangið gunnar@angling.is. Tilboðum skal skilað í lokuðum umslögum á

Nánar ⇀

Fundarboð aðalfundar LV 2025

Aðalfundur Landssambands veiðifélaga (LV) verður haldinn laugardaginn og sunnudaginn 26. og 27. apríl 2025 að Hótel Hérði (Berjaya) Egilsstöðum, og hefst dagskrá kl. 11:30 þann 26. apríl. Þátttaka á aðalfundi og tillögur Samkvæmt 5. gr. samþykkta LV hefur hvert aðildarfélag rétt til að senda einn fulltrúa á aðalfundinn fyrir hverja

Nánar ⇀