Sterkar smálaxagöngur – nýjar veiðitölur

Listi með nýjum vikutölum úr laxveiðinni er kominn á vef Landssambandsins.

Mjög sterkar smálaxagöngur virðast vera um allt land, þó sérstaklega á Vesturlandi og í Húnavatnssýslum.

Þverá og Kjarrá áttu frábæra 318 laxa viku og eru árnar komnar í toppsæti listans með 847 fiska. Vikan í Norðurá gaf 112 laxa en þar hömluðu miklir vatnavextir veiði og ljóst að áin á mikið inni. Laxá í Kjós átti mjög góða 108 laxa viku og er komin í 265 laxa.

Í Langá á Mýrum komu 115 laxar á land, en þar af komu 42 laxar í gær, 17. júlí. Ljóst að góðir dagar eru í vændum í Langá og víða á Vesturlandi.

Miðfjarðará gaf 190 laxa í vikunni og þar eru sterkar smálaxagöngur. Þá komu 110 laxar á land í Laxá á Ásum á stangirnar fjórar, mjög góður gangur þar.

Nágrannaárnar Víðidalsá og Vatnsdalsá skiluðu nánast sömu veiðinni, um 70 löxum, og eru báðar búnar að gefa um 160 fiska.

Fín veiði er á norðausturhorninu og gefa sterkar vikur í nokkrum af „minni“ ánum eins og Miðfjarðará í Bakkafirði og Sandá í Þistilfirði ástæðu til bjartsýni. Sú fyrrnefnda gaf 50 laxa í vikunni á tvær stangir og sú síðarnefnda 42 laxa á fjórar stangir.

Þá átti miðbæjarundrið, Elliðaár, frábæra viku og skilaði 129 löxum.

Allar tölur vikunnar má finna á nýjum veiðitöluvef Landssambandsins á https://veiditolur.angling.is/

Ag sanda
Ásta Guðjónsdóttir með 88cm hrygnu úr Sandá í Þistilfirði sem tók Svarta Frances smáflugu nr. 14. Mynd: GÖP