Tungufljótsdeild Veiðifélags Kúðafljóts óskar eftir tilboðum í leigu eða umboðssölu á öllum veiðirétti félagsins í Tungufljóti í Skaftártungu fyrir veiðitímabil áranna frá og með 2025 til og með 2029 með almennu útboði.
Útboðsgögnin fást afhent með rafrænum hætti hjá Landssambandi veiðifélaga. Vinsamlegast hafið samband á netfangið gunnar@angling.is.
Tilboðum skal skilað í lokuðum umslögum eigi síðar en kl. 15:00 miðvikudaginn 23. október 2024 þar sem þau verða opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska.
Áskilinn er allur réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum.