Árnar þagna – frumsýning

  • Post category:Fréttir

Ný heimildarmynd, Árnar þagna, eftir Óskar Pál Sveinsson verður frumsýnd í Sambíóum Akureyri 6. nóvember næstkomandi kl. 17:30. Að lokinni sýningu verða umræður um efni myndarinnar með frambjóðendum og kjósendum.

Eftir frumsýningu verður hringferð um landið með viðkomu í öllum kjördæmum þar sem myndin verður sýnd og umræður á eftir með frambjóðendum til Alþingis.

Landssamband veiðifélaga hvetur alla félagsmenn til að mæta á sýningu í sínu héraði og kynna sér þetta alvarlega mál.

UM MYNDINA:

Í júní á þessu ári fyrirskipaði Umhverfisstofnun Noregs lokun á 33 af þekktustu laxveiðiám Noregs vegna skaðans sem sjókvíaeldi á laxi og loftslagsbreytingar hafa valdið á villtum laxastofnum. Á einu augnabliki hvarf stór hluti lifibrauðs fjölskyldna sem hafa byggt afkomu sína á hlunnindum af stangveiði í marga ættliði. Í myndinni eru viðtöl við eigendur norskra laxveiðiáa, sem tekin voru nokkrum dögum eftir að fótunum var kippt undan tilveru þeirra, og fólk í sveitum Íslands um þá framtíð sem mögulega bíður þess og fjölskyldna þeirra.

Arnar thagna