Ósk um tilboð í leigu á veiðirétti í Blöndu og Svartá

Veiðifélag Blöndu og Svartár óskar eftir tilboðum í leigu eða umboðssölu á öllum veiðirétti félagsins í Blöndu og Svartá fyrir veiðitímabil áranna frá og með 2025 til og með 2029 með almennu útboði.

Útboðsgögnin fást afhent hjá formanni stjórnar Veiðifélags Blöndu og Svartár, Guðmundi Rúnari Halldórssyni, Finnstungu, 541 Blönduós. Vinsamlegast hafið samband á netfangið formadur@blanda-svarta.is eða síma 892-6675. Útboðsgögn verða afhent gegn 10.000 kr. skilagjaldi.

Tilboðum skal skilað í lokuðum umslögum eigi síðar en kl. 15:00 á skrifsofu Húnabyggðar á Blönduósi þann 15. júní 2024 þar sem þau verða opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska.

Áskilinn er allur réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum.

Veiðifélag Blöndu og Svartár, dags. 25.04.2024

Blanda