Nýjar vikutölur úr laxveiðinni

Ágætis gangur er í laxveiðinni og eru flestar ár búnar að skila meiri veiði en á sama tíma í fyrra þó einhverjar séu á svipuðu róli.

Þverá og Kjarrá gáfu 171 lax í vikunni og eru því komnar í 552 laxa miðað við 400 laxa á sama tíma í fyrra og er það talsverð aukning. Norðurá er hins vegar á pari miðað við árið 2021 en hún gaf 182 laxa í vikunni og er komin í 520 laxa. Hún var í 533 löxum á sama tíma í fyrra.

Nágrannarnir Laxá í Kjós og Laxá í Leir gáfu fína vikuveiði, sú fyrrnefnda 97 laxa og sú síðarnefnda 114 laxa. Langá var líka í góðu stuði og gaf 178 laxa og er því komin í 282 laxa. Haffjarðará heldur dampi og gaf hún 82 laxa, aðra vikuna í röð, og er því komin í 287 laxa.

Miðfjarðará átti sína besta viku með 139 laxa og er því komin í 211 laxa á móti 206 löxum í fyrra. Víðidalsá er komin í 129 laxa eftir 66 laxa viku en hún hafði gefið 97 laxa á sama tíma í fyrra. Laxá á Ásum er komin í 152 laxa eftir 92 laxa viku en hún hafði gefið 104 laxa á sama tíma í fyrra. Vatnsdalsá er hins vegar aðeins komin í 55 laxa á móti 60 á sama tíma í fyrra. Það er því aðeins misjafnt hvort árnar í Húnavatnssýslunum séu að bæta við sig frá sumrinu 2021 sem var þó ansi slakt.

Nú virðirst vera að rofa til í Svartá í Húnavatnssýslu en fjórir laxar komu upp á eftirmiðdagsvaktinni í gær. Áin er því komin í sjö laxa eftir tveggja vikna veiði.

Jökla gaf 68 laxa í vikunni og er komin í 101 lax. Þar virðast vera fínar göngur en áin er búin að gefa nákvæmlega jafnmarga fiska og á sama tíma í fyrra.

Stóra-Laxá er enn í mjög góðum gír og gaf vikan 100 laxa og er hún því komin í 225 laxa. Það er vel rúmlega tvöfalt meira en á sama tíma í fyrra. Virkilega gaman er að fylgjast með þessum uppgangi í Stóru og vonandi er þetta það sem koma skal í þessari stórbrotnu á. Upptaka neta á væntanlega stóran þátt í auknum göngum og áhugavert yrði að sjá hvaða afleiðingar það hefði ef minna væri drepið af laxi á veiðisvæðinu Iðu í Hvítá sem er við ósa Stóru-Laxár.

Elías pétur í svartá
Elías Pétur með 76 cm hrygnu úr Brúnarhyl í Svartá í Húnavatnssýslu í gærkvöldi.
Mynd: Markús Darri Maack