Mönnum er skylt að hafa með sér félagsskap um veiði í hverju fiskihverfi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga nr. 61/2006 um lax- og silungsveiði. Þessi félagsskapur kallast veiðifélög. Landssamband veiðifélaga er landssamtök allra veiðifélaga á Íslandi og starfar á grundvelli 5. mgr. 4. gr. sömu laga.
Landssamband veiðifélaga var stofnað árið 1958 og hlutverk þess er að gæta sameiginlegra hagsmuna veiðifélaga á Íslandi. Hlutverk þess er einnig að koma fram fyrir hönd þeirra gagnvart hinu opinbera, efla starfsemi veiðifélaga og auka samstarf þeirra, stuðla að bættri stjórn veiðimála og auka þekkingu á málefnum veiðifélaga.
STJÓRN OG FRAMKVÆMDASTJÓRI LV
Samkvæmt 9. gr. samþykkta Landssambands veiðifélaga skipa fimm menn stjórnina og skulu þeir kosnir á aðalfundi. Kjörtímabil þeirra er 3 ár, og skulu þeir ganga úr til skiptis, sitt árið hverjir tveir og formaður þriðja árið. Formaður er þannig kosinn sérstaklega, en hinir 4 skulu vera sinn úr hverjum landsfjórðungi svo og varamenn þeirra.
Formaður Landssambands veiðifélaga er Jón Helgi Björnsson, Laxamýri. Hann var fyrst kjörinn á aðalfundi Landssambandsins árið 2015 og endurkjörinn árin 2018, 2021 og 2024. Næst verður kosið um formannssætið á aðalfundi árið 2027.
Úr Suðurlandsfjórðungi, frá Skeiðará að Gullbringusýslu, kemur stjórnarmaðurinn Ari Árnason frá Veiðifélag Ytri-Rangár og vesturhluta Hólsár. Hann var fyrst kjörinn í stjórn Landssambandsins árið 2025. Næst verður kosið um hans sæti á aðalfundi árið 2028. Varamaður Ara er Haraldur Þór Jónsson frá Veiðifélagi Þjórsár.
Úr Vesturlandsfjórðungi, frá Gullbringusýslu að Hrútafjarðará, kemur stjórnarmaðurinn Jón Egilsson, Sauðhúsum. Hann var fyrst kjörinn í stjórn Landssambandsins árið 2014 og endurkjörinn 2017, 2020 og 2023. Næst verður kosið um hans sæti á aðalfundi árið 2026. Varamaður Jóns er Jón Gíslason.
Úr Norðurlandsfjórðungi, frá og með Hrútafjarðará að Langanesi, kemur stjórnarmaðurinn Kristján Þorbjörnsson frá Vatnsdal. Hann var fyrst kjörinn í stjórn Landssambandsins árið 2025 og næst verður kosið um hans sæti á aðalfundi árið 2028. Varamaður Kristjáns er Árni Pétur Hilmarsson.
Úr Austurlandsfjórðungi, frá Langanesi að Skeiðará, kemur stjórnarmaðurinn Gunnlaugur Stefánsson, Heydölum. Hann var fyrst kjörinn í stjórn Landssambandsins árið 2020 og endurkjörinn árið 2023. Næst verður kosið um hans sæti á aðalfundi árið 2026. Varamaður Gunnlaugs er Stefán Guðnason.
Framkvæmdastjóri Landssambands veiðifélaga er Jóhann Helgi Stefánsson (johann@angling.is).