Fundarboð aðalfundar LV 2024

Aðalfundur Landssambands veiðifélaga (LV) verður haldinn 19. og 20. apríl 2024, að Hótel Húsafelli, og hefst dagskrá kl. 11:30 föstudaginn 19. apríl.

Þátttaka á aðalfundi

Samkvæmt 5. gr. samþykkta LV hefur hvert aðildarfélag rétt til að senda einn fulltrúa á aðalfundinn fyrir hverja 40 félaga eða færri og einn fyrir brot af þeirri tölu, sem umfram er. Hefur hver fulltrúi eitt atkvæði á fundinum.

Óskað er eftir því að aðildarfélög sendi framkvæmdastjóra LV tilkynningu um þátttöku á aðalfundinum eigi síðar en 1. apríl nk. Vinsamlegast sendið tilkynninguna á netfangið gunnar@angling.is.

Óskað er eftir því að sendar verði upplýsingar um neðangreint:

  1. Nafn veiðifélags.
  2. Nöfn og kennitölur fulltrúa.
  3. Hversu mörg herbergi veiðifélag þarf.
  • Hægt er að gista í eins eða tveggja manna herbergjum.
  • Gert er ráð fyrir gistingu eina nótt (19. apríl) nema annars sé sérstaklega óskað.
  • Gera þarf grein fyrir séróskum í mat (ofnæmi, vegan o.fl.).

Kostnaður

Fulltrúar greiða beinan kostnað við mat og gistingu en LV greiðir annan kostnað við fundinn. Sami kostnaður er á fulltrúa og maka.

Kostnaður á mann í eins manns herbergi með fjórum máltíðum: 44.890 kr.
Kostnaður á mann í tveggja manna herb. með fjórum máltíðum: 34.390 kr.
Kostnaður á mann án gistingar með fjórum máltíðum: 20.890 kr.


Dagskrá fundar

Föstudagur 19. apríl kl. 11:30-17:00

  1. Hádegisverður.
  2. Setning fundar um kl. 12:30.
  3. Kjör fundarstjóra og fundarritara.
  4. Kosning kjörbréfanefndar.
  5. Ávörp gesta.
  6. Ávarp formanns og skýrsla stjórnar LV.
  7. Ársreikningur 2023 lagður fram til staðfestingar.
  8. Hlé vegna vinnu kjörbréfanefndar.
  9. Álit kjörbréfanefndar.
  10. Tillaga um breytingar á samþykkt Landssambands veiðifélaga. Fyrir liggur tillaga stjórnar LV um breytingar á samþykktinni og fylgir hún fundarboði þessu. Tillagan er aðgengileg með því að smella hér.
  11. Umræður um skýrslu formanns og afgreiðsla reikninga.
  12. Erindi gestafyrirlesara. Guðni Guðbergsson, sviðsstjóri hjá Hafrannsóknastofnun: Laxfiskar og sjálfbær nýting.
  13. Skipan starfsnefnda aðalfundar.
  14. Drög að ályktunum fundarins kynnt og þeim vísað til nefnda.
  15. Tillögur aðildarfélaga, sbr. 2. mgr. 4. gr. samþykktar LV.
  16. Fundi frestað um kl. 16:00, nefndarstörf.

Laugardagur 20. apríl kl. 10:00-12:00

  1. Nefndir skila áliti. Umræður.
  2. Ályktanir afgreiddar.
  3. Stjórnarkjör. Kjör formanns stjórnar.
  4. Kjör skoðunarmanna reikninga. Aðalmaður og varamaður til tveggja ára.
  5. Önnur mál.
  6. Fundarslit.

Önnur dagskrá

Föstudagur 19. apríl

11:30 – Hádegisverður.
12:30 – Fundur hefst.
16:00 – Fundi frestað og nefndarstörf hefjast.
17:15 – Dagskrá í boði heimamanna.
20:00 – Kvöldverður.

Laugardagur 20. apríl

08:30 – Morgunverður og nefndarstörfum haldið áfram.
10:00 – Fundi haldið áfram.
12:00 – Fundi slitið.
12:00 – Hádegisverður.
13:00 – Brottför.

Virðingarfyllst,
f.h. stjórnar Landssambands veiðifélaga,

Gunnar Örn Petersen,
framkvæmdastjóri

Húsafell
Hótel Húsafell. Mynd: husafell.com