Laxveiðin hafin! Fyrstu veiðitölur sumarsins
Þegar þetta er skrifað er laxveiðin hafin í Urriðafossi í Þjórsá, Norðurá í Borgarfirði og Blöndu. Fyrsti nýrenningur sumarsins veiddist þó 25. maí síðastliðinn þegar veiðimenn voru við sjóbirtingsveiðar við Skugga í Hvítá í Borgarfirði. Veiði í Norðurá hófst í gær, 4. júní, og komu 17 laxar á land. Verður
Fréttabréf Landssambands veiðifélaga 14. maí 2025
Fréttabréf Landssambands veiðifélaga var sent út í dag. Þar er fjallað um nýafstaðinn aðalfund LV, mikilvæg tilmæli til veiðifélaga, nýja skrifstofu LV, ályktanir um sjókvíaeldi o.fl. Hægt er að nálgast fréttabréfið með því að smella hér.
Ósk um tilboð í leigu á veiðirétti í Unadalsá (Hofsá) í Skagafirði
Veiðifélag Unadalsár (Hofsár) óskar eftir tilboðum í leigu á öllum veiðirétti félagsins í Unadalsá fyrir veiðitímabil áranna frá og með 2025 til og með 2029 með almennu útboði. Útboðsgögnin fást afhent með rafrænum hætti hjá Landssambandi veiðifélaga. Vinsamlegast hafið samband á netfangið gunnar@angling.is. Tilboðum skal skilað í lokuðum umslögum á
Fundarboð aðalfundar LV 2025
Aðalfundur Landssambands veiðifélaga (LV) verður haldinn laugardaginn og sunnudaginn 26. og 27. apríl 2025 að Hótel Hérði (Berjaya) Egilsstöðum, og hefst dagskrá kl. 11:30 þann 26. apríl. Þátttaka á aðalfundi og tillögur Samkvæmt 5. gr. samþykkta LV hefur hvert aðildarfélag rétt til að senda einn fulltrúa á aðalfundinn fyrir hverja
Ósk um tilboð í leigu á veiðirétti í Litluá og Skjálftavatni
Veiðifélag Litluárvatna óskar eftir tilboðum í leigu eða umboðssölu á öllum veiðirétti félagsins í Litluá og Skjálftavatni í Kelduhverfi fyrir veiðitímabil áranna frá og með 2026 til og með 2030 með almennu útboði. Útboðsgögnin fást afhent með rafrænum hætti hjá Landssambandi veiðifélaga. Vinsamlegast hafið samband á netfangið gunnar@angling.is. Tilboðum skal
Hátíðarkveðja og tímasetning aðalfundar 2025
Landssamband veiðifélaga óskar aðildarfélögum og félagsmönnum þeirra gleðilegs nýs árs og þakkar fyrir samstarfið á árinu sem er að líða. Aðalfundur Landssambands veiðifélaga árið 2025 verður haldinn á Austurlandi í þetta skiptið, nánar tiltekið að Hótel Héraði (Berjaya) á Egilsstöðum. Fundurinn verður haldinn dagana 26. og 27. apríl næstkomandi og verður hann nánar
Árnar þagna – frumsýning
Ný heimildarmynd, Árnar þagna, eftir Óskar Pál Sveinsson verður frumsýnd í Sambíóum Akureyri 6. nóvember næstkomandi kl. 17:30. Að lokinni sýningu verða umræður um efni myndarinnar með frambjóðendum og kjósendum. Eftir frumsýningu verður hringferð um landið með viðkomu í öllum kjördæmum þar sem myndin verður sýnd og umræður á eftir
Ósk um tilboð í leigu á veiðirétti í Tungufljóti í Skaftártungu
Tungufljótsdeild Veiðifélags Kúðafljóts óskar eftir tilboðum í leigu eða umboðssölu á öllum veiðirétti félagsins í Tungufljóti í Skaftártungu fyrir veiðitímabil áranna frá og með 2025 til og með 2029 með almennu útboði. Útboðsgögnin fást afhent með rafrænum hætti hjá Landssambandi veiðifélaga. Vinsamlegast hafið samband á netfangið gunnar@angling.is. Tilboðum skal skilað
Sterkar smálaxagöngur – nýjar veiðitölur
Listi með nýjum vikutölum úr laxveiðinni er kominn á vef Landssambandsins. Mjög sterkar smálaxagöngur virðast vera um allt land, þó sérstaklega á Vesturlandi og í Húnavatnssýslum. Þverá og Kjarrá áttu frábæra 318 laxa viku og eru árnar komnar í toppsæti listans með 847 fiska. Vikan í Norðurá gaf 112 laxa
Nýjar vikutölur úr laxveiðinni
Listi með nýjum veiðitölum úr laxveiðinni var birtur nú í hádeginu á vef Landssambandsins. Stígandi er í veiðinni víðast hvar á Vesturlandi. Laxá í Kjós gaf 78 laxa í vikunni og er komin í 157 stykki á meðan Laxá í Leir gaf 85 og er þá komin í 180 fiska.

