Vikulegar veiðitölur úr laxveiðinni
Vikulegar tölur úr laxveiðinni eru komnar á vef Landssambandsins. Frekar rólegt er yfir veiðinni á Vesturlandi, í Húnavatnssýslum og á Suðurlandi. Veiðimenn á þessum svæðum eru sammála um að veðrabreytingar og rigningar gætu aukið töku því í mörgum ám er þó nokkuð af fiski en hann tekur illa. Þverá og
Nýjar veiðitölur
Vikulegar veiðitölur eru komnar í vefinn miðað við stöðuna í lok dags 19. júlí. Norðurá heldur efsta sætinu eftir 103 laxa viku og er komin í 553 laxa. Svo virðist sem ágæt smálaxaganga hafi verið í mörgum ám í Borgarfirði og Dölunum á stóra straumnum sem var þann 19. júlí.
Vikulegar veiðitölur koma á föstudag
Vikulegar veiðitölur úr laxveiðinni munu koma á vef Landssambands veiðifélaga fyrir hádegi föstudaginn 21. júlí í stað þess að koma á fimmtudegi. Við erum ekki í netsambandi á fimmtudag vegna veiðiferðar. Við biðjumst velvirðingar á þessari seinkunn.
Vikulegar veiðitölur
Nýr listi með vikulegum veiðitölum úr helstu laxveiðiánum er kominn á vef Landssambandsins. Nokkuð misjafn gangur virðist vera í veiðinni en Norðurá og Þverá/Kjarrá áttu ágætar vikur með rúmlega 100 laxa í báðum ám. Norðurá heldur því toppsætinu með 450 laxa. Vel gengur í Haffjarðará en hún er komin í
Fréttabréf Landssambands veiðifélaga 10. júlí 2023
Fréttabréf Landssambands veiðifélaga var sent út í dag. Þar er fjallað um heimild veiðifélaga til veiða á hnúðlaxi í net, skelfilegar niðurstöður úr rannsókn á erfðablöndun og laxveiðina í sumar. Hægt er að nálgast fréttabréfið með því að smella hér.
Skelfilegar niðurstöður um erfðamengun
Bændur, veiðiréttarhafar, allir sem hafa hagsmuni af stangveiði hér á landi og náttúruverndarsinnar lýsa yfir miklum áhyggjum af niðurstöðum rannsóknar í nýútkominni skýrslu Hafrannsóknastofnunar. Sláandi niðurstöður rannsóknarinnar staðfesta mikla erfðablöndun villtra íslenskra laxastofna við norskan eldislax. Fyrir hönd þessara aðila vill Landssamband veiðifélaga (LV) koma eftirfarandi á framfæri: Niðurstöður rannsóknarinnar
Smálaxinn að skila sér – Vikulegar veiðitölur
Enn gengur laxveiðin vel í flestum ám og fínar smálaxagöngur byrjaðar víða. Helst má nefna mjög góða vikuveiði í Þverá og Kjarrá eða 179 laxa og eru árnar komnar upp í 297 laxa samtals. Einnig var frábær veiði í Selá í Vopnafirði en þar kom 91 lax á land á
Góður gangur í laxveiðinni – Nýjar tölur
Fínn gangur er í laxveiðinni og verður spennandi að sjá hvort smálaxinn skili sér af krafti á næstu dögum. Norðurá skilaði 118 löxum í vikunni og fer því í toppsætið með 246 laxa. Mjög góð veiði í Hítará á Mýrum vekur athygli en þar gaf vikan 34 laxa og áin
Vikulegar veiðitölur úr laxveiðinni
Fjölmargar laxveiðiár opnuðu í vikunni og eru nýjustu tölur komnar á vef Landssambandsins angling.is. Urriðafoss hefur gefið flesta laxa eða um 160. Nákvæmari tala kemur á listann síðar í dag. Fínar opnanir hafa verið víða t.d. í Haffjarðará, Víðidalsá og Eystri-Rangá. Þau veiðifélög eða leigutakar sem vilja vera á vikulegum
Vikulegar veiðitölur úr laxveiðinni
Laxveiðin er hafin á nokkrum veiðisvæðum og nýjustu tölur eru komnar inn á angling.is. Þverá og Kjarrá voru opnaðar í vikunni og þar eru komnir 33 laxar á land. Veiðimenn við Þverá töldu ekki mikinn lax á svæðinu en þó væri einhver ganga. Veiðin í Norðurá er fín en eftir