Laxveiðisumarið er nú komið af stað í nokkrum helstu ám landsins. Víða hefur verið líf í opnunum og fallegir fiskar komið á land, en veiðin hefur sums staðar róast hratt eftir fyrstu vaktir. Athyglisvert er þó að smálaxar eru þegar farnir að sýna sig í nokkrum ám.
Góðar fréttir hafa borist úr Þverá og Kjarrá, þar sem opnanir hafa verið líflegar, og Blanda virðist vera að taka við sér eftir rólega byrjun. Þá komu tveir laxar á land í opnun Laxár í Leirársveit og Haffjarðarár, og fyrsti laxinn er kominn úr fleiri ám sem hafa opnað síðustu daga, svo sem Grímsá.
Norðurá fór sömuleiðis vel af stað en hefur verið róleg síðustu daga. Miðfjarðará gaf sex laxa á opnunardegi, sem var einum laxi meira en í fyrra, og á þjóðhátíðardaginn komu þrír laxar til viðbótar.
Enn er þó snemmt að draga stórar ályktanir um sumarið í heild. Næstu vikur munu gefa skýrari mynd af göngum sumarsins, ekki síst hvort smálaxinn heldur áfram að mæta í auknum mæli líkt og spár Hafrannsóknarstofnunar gera ráð fyrir.
Landssamband veiðifélaga mun birta vikulegar veiðitölur á veiðitöluvef sambandsins í sumar, líkt og undanfarin ár. Veiðitölur fyrir þær ár sem hafa opnað má sjá hér.


