Ósk um tilboð í leigu á veiðirétti í Svartá í Skagafirði

Svartárdeild Veiðifélags Skagafjarðar, óskar eftir tilboðum í leigu á öllum veiðirétti félagsins í Svartá  fyrir veiðitímabil áranna frá og með 2027 til og með 2031 með almennu útboði.

Útboðsgögnin fást afhent með rafrænum hætti hjá Landsambandi Veiðifélaga. Vinsamlegast hafið samband á netfangið angling@angling.is.

Tilboðum skal skilað í lokuðum umslögum eigi síðar en kl. 13:00 þann 1. sept 2026, þar sem þau verða opnuð i viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska.

Áskilinn er allur réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum. 

Fullsizerender
Urriði úr Svartá í Skagafirði / mynd: Elvar Örn Friðriksson