Landssamband veiðifélaga mótmælir harðlega þeirri ákvörðun Matvælastofnunar og Umhverfis- og orkustofnunar að gefa út rekstrar- og starfsleyfi til sjókvíaeldis í Seyðisfirði. Landssambandið mun taka þátt í að kæra ákvarðanirnar til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.
Eldi frjórra laxa í sjókvíum í Seyðisfirði skapar óásættanlega áhættu fyrir villta laxa- og silungastofna um allt Austurland og Norðausturland. Á veiðifélögum hvílir rík lagaleg skylda til að verja þá auðlind sem felst í öflugum og heilbrigðum laxa- og silungastofnum í ám og vötnum. Veiðiréttur nýtur jafnframt verndar eignarréttarákvæðis stjórnarskrárinnar.
Með tilkomu eldis í Seyðisfirði eykst hættan á að eldislax sleppi úr kvíum og gangi upp í ár á svæðinu, með tilheyrandi erfðablöndun og óafturkræfum skaða á villtum laxastofnum. Reynslan sýnir að áhrifin geta náð hundraða kílómetra frá staðsetningu kvíanna. Sjókvíaeldi fylgir auk þess mikil hætta á sjúkdómum og laxalús sem munu óhjákvæmilega berast í villta laxa- og silungastofna. Eldið veldur því miklu álagi á vistkerfi fjarðarins, sem kemur niður á sjógöngusilungi, villtum löxum og öðru lífríki.
Ákvörðunin er enn fremur óásættanleg í ljósi þess að mikill meirihluti Seyðfirðinga er andvígur sjókvíaeldi í firðinum. Þá er áhættumat erfðablöndunar, eitt mikilvægasta stjórntækið í sjókvíaeldi, löngu úrelt og margir gallar þess hafa verið dregnir fram. Ekkert bólar þó á uppfærðu áhættumati, sem mun að öllum líkindum heimila mun minni framleiðslu frjórra laxa í íslenskum fjörðum ef vísindin fá að ráða líkt og lög gera ráð fyrir.
Landssambandið hvetur öll til að mæta á Austurvöll eða Seyðisfjörð þann 11. október kl 15:00 og standa með Seyðfirðingum og mótmæla útgáfu rekstrarleyfis.


