Fundarboð aðalfundar LV 2025

Aðalfundur Landssambands veiðifélaga (LV) verður haldinn laugardaginn og sunnudaginn 26. og 27. apríl 2025 að Hótel Hérði (Berjaya) Egilsstöðum, og hefst dagskrá kl. 11:30 þann 26. apríl.

Þátttaka á aðalfundi og tillögur

Samkvæmt 5. gr. samþykkta LV hefur hvert aðildarfélag rétt til að senda einn fulltrúa á aðalfundinn fyrir hverja 40 félaga eða færri og einn fyrir brot af þeirri tölu, sem umfram er. Hefur hver fulltrúi eitt atkvæði á fundinum.

Óskað er eftir því að aðildarfélög sendi framkvæmdastjóra LV tilkynningu um þátttöku á aðalfundinum eigi síðar en 28. mars nk. Vinsamlegast sendið tilkynninguna á netfangið gunnar@angling.is.

Óskað er eftir því að sendar verði upplýsingar um neðangreint:

  1. Nafn veiðifélags.
  2. Nöfn og kennitölur fulltrúa.
  3. Hversu mörg herbergi veiðifélag þarf.
  • Hægt er að gista í eins eða tveggja manna herbergjum.
  • Gert er ráð fyrir gistingu eina nótt (26. apríl) nema annars sé sérstaklega óskað.
  • Gera þarf grein fyrir séróskum í mat (ofnæmi, vegan o.fl.).

Aðildarfélög skulu senda stjórn sambandsins tillögur þær er þau óska að ræddar séu á aðalfundum eigi síðar en tveimur vikum fyrir boðaðan aðalfund. Vinsamlegast sendið tillögur á netfangið gunnar@angling.is eigi síðar en 11. apríl. Stjórn sambandsins skal senda allar tillögur sem berast samkvæmt þessari grein til aðildarfélaga eigi síðar en tíu dögum fyrir aðalfund.

Kostnaður

Fulltrúar greiða beinan kostnað við mat og gistingu en LV greiðir annan kostnað við fundinn. Sami kostnaður er á fulltrúa og maka/gest.

Kostnaður á mann í eins manns herbergi með fjórum máltíðum: 35.050 kr.
Kostnaður á mann í tveggja manna herb. með fjórum máltíðum: 28.050 kr.
Kostnaður á mann án gistingar með þremur máltíðum: 17.000 kr.


Dagskrá fundar

Laugardagur 26. apríl kl. 11:30-17:00

  1. Hádegisverður.
  2. Setning fundar um kl. 12:30.
  3. Kjör fundarstjóra og fundarritara.
  4. Kosning kjörbréfanefndar.
  5. Ávörp gesta.
  6. Ávarp formanns og skýrsla stjórnar LV.
  7. Ársreikningur 2024 lagður fram til staðfestingar.
  8. Hlé vegna vinnu kjörbréfanefndar.
  9. Álit kjörbréfanefndar.
  10. Umræður um skýrslu formanns og afgreiðsla reikninga.
  11. Erindi gestafyrirlesara. Fréttir úr Vopnafirði – Starfsemi Six Rivers og veiðifélaga í Vopnafirði.
  12. Skipan starfsnefnda aðalfundar.
  13. Drög að ályktunum fundarins kynnt og þeim vísað til nefnda.
  14. Tillögur aðildarfélaga, sbr. 2. mgr. 4. gr. samþykktar LV.
  15. Fundi frestað um kl. 16:00, nefndarstörf.

Sunnudagur 27. apríl kl. 10:30-12:00

  1. Nefndir skila áliti. Umræður.
  2. Ályktanir afgreiddar.
  3. Stjórnarkjör. Kjör stjórnarmanna frá Norður- og Suðurlandi.
  4. Kjör skoðunarmanna reikninga. Aðalmaður og varamaður til tveggja ára.
  5. Önnur mál.
  6. Fundarslit.

Önnur dagskrá

Laugardagur 26. apríl

11:30 – Hádegisverður.
12:30 – Fundur hefst.
16:00 – Fundi frestað og nefndarstörf hefjast.
17:15 – Dagskrá í boði heimamanna.
20:00 – Kvöldverður.

Sunnudagur 27. apríl

08:30 – Morgunverður og nefndarstörfum haldið áfram.
10:30 – Fundi haldið áfram.
12:00 – Fundi slitið.
12:00 – Hádegisverður.
13:00 – Brottför.

Virðingarfyllst,
f.h. stjórnar Landssambands veiðifélaga,

Gunnar Örn Petersen,
framkvæmdastjóri

Jokla07
Við Jöklu. Mynd: strengir.is