Upptaktur að veiðisumri – fundur hjá Hafró

  • Post category:Fréttir

Hafrannsóknastofnun boðar til fundar um málefni ferskvatnsfiska föstudaginn 26. maí 2023, í aðdraganda komandi veiðisumars. Fundurinn verður haldinn í húsakynnum Hafrannsóknastofnunar að Fornubúðum 5 í Hafnarfirði. Gestum verður boðið að þiggja morgunverð fyrir fundinn.

Dagskrá:

8:30-9:00 Morgunverður

9:00-9:05 Fundur settur
Þorsteinn Sigurðsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar

9:05-9:25 Staða Atlantshafslax
Hlynur Bárðarson, Hafrannsóknastofnun

9:25-9:45 Hnúðlax
Guðni Guðbergsson, Hafrannsóknastofnun

9:45-10:05 Laxastofnar og umhverfisþættir í sjó Sigurður Már Einarsson, Hafrannsóknastofnun

10:05-10:20 Kaffihlé

10:20-10:40 Staða bleikjustofna
Guðni Guðbergsson, Hafrannsóknastofnun

10:40-11:00 Rafræn skráning veiði
Guðni Magnús Eiríksson, Fiskistofu

Þátttakendur eru beðnir um að skrá sig hér, eigi síðar en á hádegi fimmtudaginn 25. maí 2023.

Img 9114