Aðalfundur Landssambands veiðifélega var haldinn á Laugum í Sælingsdal 24. og 25. apríl 2026. Þar mættu fulltrúa veiðifélaga af öllu landinu, til að ræða fjölmörg málefni sem snerta veiðifélög landsins.
Aðalfundurinn ályktaði eftirfarandi:
Aðalfundur Landssambands veiðifélaga, haldinn á Laugum í Sælingsdal 24. – 25. apríl 2026, skorar á Alþingi að leggja til hliðar að sinni framlagt frumvarp um lagareldi og leita sátta með öllum hagsmunaaðilum um gerð nýs frumvarps.
Þar verði ekki aðeins gætt hagsmuna fiskeldisiðnaðarins heldur verði einnig hugað að umhverfisvernd, vernd villta fiskistofna og atvinnulífi tengdu stangveiði til jafns við það sem tengt er fiskeldi.
Lýsir Landssambandið sig reiðubúið til að taka þátt í gerð slíks frumvarps.


