Nokkuð hefur lifnað yfir veiðinni með vætu og veðrabreytingum undanfarna daga þó enn megi rigna talsvert meira. Kjósin átti sína bestu viku síðan um miðjan júlí og þar komu 33 laxar á land. Norðurá var með 98 laxa viku og er það einnig besta vikan síðan um miðjan júlí og munar þar mestu um 36 laxa dag þann 27. ágúst.
Mjög gott skot kom í Laxá í Dölum en þar komu 123 laxar á land og er það lang besta vika sumarsins þar á bæ. Veiðimenn telja að Laxá eigi töluvert inni á lokasprettinum.
Laxá í Aðaldal heldur striki en þar komu 58 laxar í vikunni og er áin nú í níunda sæti listans eða sjöunda ef aðeins er miðað við ár sem ekki reiða sig að megninu á seiðasleppingar.
Enn er fín veiði í Vopnafirði en Selá gaf 107 laxa og er þar með komin í 1.058 laxa og í þriðja sæti listans á eftir Rangánum. Selá, með sínar sex stangir, virðist því vera að gefa bestu veiðina í sumar.
Lista með nýjum tölum má finna hér.