Aðalfundur Landssambands veiðifélaga (LV) verður haldinn föstudaginn og laugardaginn 24. og 25. apríl 2026 að Dalahóteli, Laugum í Sælingsdal, Dalasýslu og hefst dagskrá kl. 11:30 þann 24 apríl.
Þátttaka á aðalfundi og tillögur
Samkvæmt 5. gr. samþykkta LV hefur hvert aðildarfélag rétt til að senda einn fulltrúa á aðalfundinn fyrir hverja 40 félaga eða færri og einn fyrir brot af þeirri tölu, sem umfram er. Hefur hver fulltrúi eitt atkvæði á fundinum.
Óskað er eftir því að aðildarfélög sendi framkvæmdastjóra LV tilkynningu um þátttöku á aðalfundinum eigi síðar en 1. apríl nk. Vinsamlegast sendið tilkynninguna á netfangið johann@angling.is.
Óskað er eftir því að sendar verði upplýsingar um neðangreint:
- Nafn veiðifélags.
- Nöfn og kennitölur fulltrúa.
- Hversu mörg herbergi veiðifélag þarf.
- Hægt er að gista í eins, tveggja eða fjögurra manna herbergjum með baði. Einnig er boðið uppá tveggja manna herbergi með sameiginlegu baði á lægra verði.
- Gert er ráð fyrir gistingu eina nótt (24. apríl) nema annars sé sérstaklega óskað.
- Gera þarf grein fyrir séróskum í mat (ofnæmi, vegan o.fl.).
Aðildarfélög skulu senda stjórn sambandsins tillögur þær er þau óska að ræddar séu á aðalfundum eigi síðar en tveimur vikum fyrir boðaðan aðalfund. Vinsamlegast sendið tillögur á netfangið johann@angling.is eigi síðar en 10. apríl. Stjórn sambandsins skal senda allar tillögur sem berast samkvæmt þessari grein til aðildarfélaga eigi síðar en tíu dögum fyrir aðalfund.
Kostnaður
Fulltrúar greiða beinan kostnað við mat og gistingu en LV greiðir annan kostnað við fundinn. Sami kostnaður er á fulltrúa og maka/gest.
| Tegund herbergja | Verð (kr) per herbergi | Fjöldi herbergja í boði |
| Tveggja manna herbergi með baði | 32.900 | 11 |
| Eins manns herbergi með baði | 25.900 | 5 |
| Fjögurra manna herbergi með baði | 38.500 | 1 |
| Tveggja manna herbergi með sameiginlegu baði | 24.900 | 19 |
| Matur | Verð (kr) á mann | |
| 2x Hádegisverður, 1x Kvöldverður og 1x Morgunverður | 16.100 |
Dagskrá fundar
Föstudagur 24. apríl kl. 11:30-17:00
- Hádegisverður.
- Setning fundar um kl. 12:30.
- Kjör fundarstjóra og fundarritara.
- Kosning kjörbréfanefndar.
- Ávörp gesta.
- Ávarp formanns og skýrsla stjórnar LV.
- Ársreikningur 2025 lagður fram til staðfestingar.
- Hlé vegna vinnu kjörbréfanefndar.
- Álit kjörbréfanefndar.
- Umræður um skýrslu formanns og afgreiðsla reikninga.
- Erindi gestafyrirlesara.
- Skipan starfsnefnda aðalfundar.
- Drög að ályktunum fundarins kynnt og þeim vísað til nefnda.
- Tillögur aðildarfélaga, sbr. 2. mgr. 4. gr. samþykktar LV.
- Fundi frestað um kl. 16:00, nefndarstörf.
Laugardagur 25. apríl kl. 10:30-12:00
- Nefndir skila áliti. Umræður.
- Ályktanir afgreiddar.
- Stjórnarkjör. Kjör stjórnarmanna frá Vestur- og Austurlandi.
- Kjör skoðunarmanna reikninga. Aðalmaður og varamaður til tveggja ára.
- Önnur mál.
- Fundarslit.
Önnur dagskrá
Föstudagur 24. apríl
11:30 – Hádegisverður.
12:30 – Fundur hefst.
16:00 – Fundi frestað og nefndarstörf hefjast.
17:15 – Dagskrá í boði heimamanna.
20:00 – Kvöldverður.
Laugardagur 25. apríl
08:30 – Morgunverður og nefndarstörfum haldið áfram.
10:30 – Fundi haldið áfram.
12:00 – Fundi slitið.
12:00 – Hádegisverður.
13:00 – Brottför.
Virðingarfyllst,
f.h. stjórnar Landssambands veiðifélaga,
Jóhann Helgi Stefánsson,
framkvæmdastjóri


