SKUGGI (Í HVÍTÁ)

Skuggi er stangaveiðistaður í Hvítá í Borgarfirði strax neðan við ósinn þar sem Grímsá rennur í hana. Var ágætur veiðistaður en hefur heldur tapað sér vegna sandburðar síðustu ár. Veiðiréttur fylgir jörðinni Hvítárvöllum og er leigður nokkrum einstaklingum til næstu ára. Með fylgir silungasvæði neðst í Grímsá. Eftir að netaveiði var hætt í Hvítá hefur eigandi Hvítárvalla einnig leigt stangaveiði neðan við Skuggann allt niður að gömlu Hvítárbrúnni. Helstu veiðistaðir þar eru Þvottaklöpp og Norðurkot. Yfirleitt fást þar nokkrir tugir laxa á sumri hverju, en oft er góð silungsveiði á svæðinu. Leigutaki er veiðifélagið.

Vefsíða:

www.hreggnasi.is

store.hreggnasi.is

VEIÐITÖLUR VIKU FYRIR VIKU

HEILDARVEIÐI FYRRI ÁRA

VIKA FYRIR VIKU 2021