{"id":8556,"date":"2020-06-04T11:39:37","date_gmt":"2020-06-04T11:39:37","guid":{"rendered":"https:\/\/angling.webdev.is\/?p=8556"},"modified":"2021-02-08T17:58:53","modified_gmt":"2021-02-08T17:58:53","slug":"alyktanir-landssambands-veidifelaga-2005","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/angling.is\/en\/alyktanir-landssambands-veidifelaga-2005\/","title":{"rendered":"\u00c1lyktanir 2005"},"content":{"rendered":"<p><strong>A\u00f0alfundur Landssambands vei\u00f0if\u00e9laga<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p><strong>Borgarnesi 10. &#8211; 11. j\u00fan\u00ed 2005<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p><strong>\u00c1lyktanir sam\u00feykktar \u00e1 fundinum:<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p><strong>I<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p><strong>Tilm\u00e6li um a\u00f0 hl\u00edfa st\u00f3rlaxi<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p>A\u00f0alfundur Landssambands vei\u00f0if\u00e9laga, haldinn \u00cd Borgarnesi dagana 10. &#8211; 11. j\u00fan\u00ed 2005, telur br\u00fdnt a\u00f0 g\u00e6ta var\u00fa\u00f0ar vegna hinnar miklu ni\u00f0ursveiflu sem veri\u00f0 hefur \u00ed endurheimtum \u00e1 st\u00f3rlaxi undanfari 20 \u00e1r.&nbsp; Fundurinn beinir \u00fev\u00ed til a\u00f0ildarf\u00e9laganna a\u00f0 gera \u00fea\u00f0 sem \u00ed \u00feeirra valdi stendur til a\u00f0 hl\u00edfa \u00feeim laxi vi\u00f0 vei\u00f0i me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 taka \u00fea\u00f0 upp vi\u00f0 leigutaka \u00e1nna a\u00f0 veiddum st\u00f3rlaxi ver\u00f0i sleppt eftir \u00fev\u00ed sem kostur er.<\/p>\n\n\n\n<p><em>Greinarger\u00f0:<\/em><\/p>\n\n\n\n<p>Vei\u00f0it\u00f6lur s\u00fdna a\u00f0 lax sem dvelur lengur \u00ed sj\u00f3 en 2 \u00e1r&nbsp; skilar s\u00e9r me\u00f0 minnsta m\u00f3ti til baka \u00ed \u00e1rnar. V\u00edsindamenn hafa bent \u00e1 \u00fe\u00e1 h\u00e6ttu sem \u00feetta \u00e1stand getur skapa\u00f0 hva\u00f0 var\u00f0ar erf\u00f0abreytileika laxastofna.&nbsp; \u00dea\u00f0 er skylda vei\u00f0if\u00e9laga, sem v\u00f6rslua\u00f0ila au\u00f0lindarinnar, a\u00f0 g\u00e6ta var\u00fa\u00f0ar \u00ed umgengi vi\u00f0 n\u00fdtingu \u00e1 laxi.&nbsp; \u00dev\u00ed er e\u00f0lilegt a\u00f0 g\u00e6ta var\u00fa\u00f0ar vi\u00f0 vei\u00f0ar \u00e1 st\u00f3rlaxi \u00e1 me\u00f0an a\u00f0 \u00feetta \u00e1stand varir.&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p><strong>II<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p><strong>Sj\u00f3kv\u00edaeldi<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p>A\u00f0alfundur Landssambands vei\u00f0if\u00e9laga, haldinn \u00ed Borgarnesi 10. \u2013 11. j\u00fan\u00ed 2005,&nbsp; minnir \u00e1 nau\u00f0syn \u00feess a\u00f0 \u00f6flugt eftirlit s\u00e9 haft me\u00f0 eldi norskra laxa \u00ed sj\u00f3.&nbsp; S\u00e1 stutti t\u00edmi sem li\u00f0inn er fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 st\u00f3rfellt sj\u00f3kv\u00edaeldi h\u00f3fst vi\u00f0 strendur landsins getur ekki talist markt\u00e6k reynsla \u00e1 \u00fea\u00f0 \u00ed hva\u00f0a m\u00e6li laxar sleppa \u00far kv\u00edum og hvort \u00feeir koma til me\u00f0 a\u00f0 ganga til hrygningar \u00ed laxvei\u00f0i\u00e1rnar og blandast sta\u00f0bundum stofnum. Fundurinn skorar \u00e1 landb\u00fana\u00f0arr\u00e1\u00f0herra a\u00f0 n\u00fdta heimildir \u00ed l\u00f6gum til a\u00f0 setja reglur um st\u00e6r\u00f0arm\u00f6rk eldis \u00e1 \u00feeim sv\u00e6\u00f0um \u00fear sem heimilt er a\u00f0 ala lax \u00ed kv\u00edum<\/p>\n\n\n\n<p>Fundurinn \u00edtrekar fyrri \u00e1lyktanir um a\u00f0 unni\u00f0 ver\u00f0i a\u00f0 \u00fer\u00f3un geldstofns laxa ef leyfa \u00e1 eldi framandi laxastofna \u00ed hafinu vi\u00f0 landi\u00f0. Tj\u00f3n sem ver\u00f0ur af v\u00f6ldum erf\u00f0amengunar eldislaxa \u00ed \u00edslenskum \u00e1m ver\u00f0ur ekki b\u00e6tt. Minnt skal \u00e1 a\u00f0 hlunnindi af&nbsp; laxi eru&nbsp; tugmilljar\u00f0a vir\u00f0i og a\u00f0 eldisfyrirt\u00e6kjunum er ekki gert skylt a\u00f0 taka tryggingar til a\u00f0 b\u00e6ta \u00fea\u00f0 tj\u00f3n sem \u00feau kunna a\u00f0 valda a\u00f0 \u00feessu leyti me\u00f0 starfsemi sinni.<\/p>\n\n\n\n<p>Fundurinn skorar \u00e1 vei\u00f0imenn a\u00f0 vera vakandi fyrir \u00fev\u00ed hvort eldisfiskur leynist \u00ed aflanum.<\/p>\n\n\n\n<p><em>Greinarger\u00f0:<\/em><\/p>\n\n\n\n<p>\u00c1 s\u00ed\u00f0ast li\u00f0nu vori barst haf\u00eds inn \u00e1 Nor\u00f0fjar\u00f0arfl\u00f3a sem minnir \u00e1 \u00fe\u00e1 \u00f3gn sem getur skapast af n\u00e1tt\u00farunnar v\u00f6ldum \u00ed fj\u00f6r\u00f0um landsins \u00fear sem sj\u00f3kv\u00edaeldi er stunda\u00f0. Sem sty\u00f0ur mikilv\u00e6gi \u00feess a\u00f0 \u00fer\u00f3a geldstofn til a\u00f0 nota \u00ed sj\u00f3kv\u00edaeldi. &nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p><strong>III<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p><strong>Endursko\u00f0un laga um lax- og silungsvei\u00f0i<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p>A\u00f0alfundur Landssambands vei\u00f0if\u00e9laga, haldinn \u00ed Borgarnesi 10. &#8211; 11. j\u00fan\u00ed 2005, fagnar \u00feeirri vinnu sem l\u00f6g\u00f0 hefur veri\u00f0 \u00ed endursko\u00f0un laga um lax- og silungsvei\u00f0i.&nbsp; Fundurinn leggur \u00feunga \u00e1herslu \u00e1 a\u00f0 heildarendursko\u00f0un laganna n\u00e1i fram a\u00f0 ganga og heitir \u00e1 al\u00feingismenn a\u00f0 veita m\u00e1linu li\u00f0sinni sitt. Fundurinn felur stj\u00f3rn LV a\u00f0 fylgja m\u00e1linu eftir. &nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p><strong>IV<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p><strong>\u00datr\u00fdming minks \u00far n\u00e1tt\u00faru landsins<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p>A\u00f0alfundur Landssambands vei\u00f0if\u00e9laga, haldinn \u00ed Borgarnesi dagana 10. &#8211; 11.&nbsp; j\u00fan\u00ed 2005,<\/p>\n\n\n\n<p>telur mi\u00f0ur a\u00f0 till\u00f6gur um skipulegt \u00e1tak vi\u00f0 \u00fatr\u00fdmingu e\u00f0a f\u00e6kkun villiminks hafa ekki komist \u00ed framkv\u00e6md. Fundurinn skorar \u00e1 umhverfisr\u00e1\u00f0herra a\u00f0 hrinda till\u00f6gum \u201cminkanefndar\u201d \u00ed framkv\u00e6md hi\u00f0 fyrsta og tryggi r\u00edki\u00f0 fj\u00e1magn til verkefnisins.&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p><em>Greinarger\u00f0:<\/em><\/p>\n\n\n\n<p>Lj\u00f3st er a\u00f0 n\u00faverandi fyrirkomulag vi\u00f0 minkavei\u00f0ar hefur ekki skila\u00f0 n\u00e6gjanlegum \u00e1rangri. Heildarsamr\u00e6ming og skipulag vi\u00f0 vei\u00f0ar er \u00f3fulln\u00e6gjandi og virkar ekki. \u00de\u00e1 eru m\u00f6rg sveitarf\u00e9l\u00f6g afar v\u00ed\u00f0\u00e1ttumikil og b\u00faa auk \u00feess vi\u00f0 erfi\u00f0an fj\u00e1rhag. \u00deau r\u00e1\u00f0a \u00fev\u00ed m\u00f6rg hver ekki vi\u00f0 \u00feann kostna\u00f0 sem vei\u00f0unum fylgir. Minkurinn var \u00e1 s\u00ednum t\u00edma fluttur til landsins fyrir tilstu\u00f0lan stj\u00f3rnvalda og \u00feau bera \u00fev\u00ed fulla \u00e1byrg\u00f0 \u00e1 tilveru hans \u00ed \u00edslenskri n\u00e1tt\u00faru og ber skylda til \u00feess a\u00f0 \u00fatr\u00fdma honum \u00far \u00edslensku l\u00edfr\u00edki. Nau\u00f0synlegt er a\u00f0 sn\u00faa vi\u00f0 \u00feeirri \u00f3heilla\u00fer\u00f3un sem fj\u00f6lgun villiminks hefur haft \u00ed f\u00f6r me\u00f0 s\u00e9r, en hann veldur st\u00f3rfelldu tj\u00f3ni \u00e1 l\u00edfr\u00edki landsins jafnt \u00e1 landi sem \u00ed \u00e1m og v\u00f6tnum.<\/p>\n\n\n\n<p><strong>V<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p><strong>Silungsnefnd<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p>A\u00f0alfundur Landsambands vei\u00f0if\u00e9laga, haldinn \u00ed Borgarnesi dagana 10.og 11. j\u00fan\u00ed 2005, fagnar \u00e1kv\u00f6r\u00f0un landb\u00fana\u00f0arr\u00e1herra a\u00f0 skipa verkefnisstj\u00f3rn sem \u00e1 a\u00f0 kanna lei\u00f0ir til \u00feess a\u00f0 auka n\u00fdtingu&nbsp; og ver\u00f0m\u00e6ti silungsvei\u00f0a \u00e1 \u00cdslandi.<\/p>\n\n\n\n<p>Vann\u00fdtt t\u00e6kif\u00e6ri til stangvei\u00f0a \u00e1 silungi eru v\u00ed\u00f0a og \u00fearf a\u00f0 auka \u00e1huga eigenda \u00feessara hlunninda \u00e1 n\u00fdtingu \u00feeirra og lei\u00f0beina \u00feeim \u00e1 hvern h\u00e1tt megi auka ver\u00f0m\u00e6tin.<\/p>\n\n\n\n<p>A\u00f0alfundurinn leggur \u00e1herslu \u00e1 a\u00f0 tryggt ver\u00f0i fj\u00e1rmagn til verkefnisins, sem g\u00e6ti stu\u00f0la\u00f0 a\u00f0 aukinni ver\u00f0m\u00e6task\u00f6pun \u00ed sveitum landsins.&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p><strong>VI<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p><strong>Ranns\u00f3knir<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p>A\u00f0lafundur Landsambands vei\u00f0if\u00e9laga, haldinn \u00ed Borgarnesi dagana 10.og 11. j\u00fan\u00ed 2005, skorar \u00e1 stj\u00f3rnv\u00f6ld a\u00f0 auka fj\u00e1rframl\u00f6g til ranns\u00f3kna og \u00fer\u00f3unarstarfs \u00e1 fiskstofnum \u00ed \u00e1m og v\u00f6tnum.<\/p>\n\n\n\n<p>Hagkv\u00e6m og sj\u00e1lfb\u00e6r n\u00fdting vei\u00f0ihlunninda er afar mikilv\u00e6g til vi\u00f0halds bygg\u00f0ar \u00ed landinu, sem og til \u00e1n\u00e6gjuauka \u00feeim fj\u00f6lda innlendra og erlendra manna er h\u00e9r stunda vei\u00f0ar.&nbsp; \u00c1 \u00feessu svi\u00f0i hafa ranns\u00f3knir og \u00feekking Vei\u00f0im\u00e1lastofnunar reynst \u00f3metanleg, \u00fe\u00f3 enn betur \u00feurfi a\u00f0 gera. &nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p>\u00de\u00e1 hefur \u00fej\u00f3\u00f0hagslegt gildi vei\u00f0ihlunninda reynst mun meira en \u00e1\u00f0ur var tali\u00f0 og hr\u00f3plegt \u00f3samr\u00e6mi milli \u00feeirrar framleg\u00f0ar og fj\u00e1rframlaga stj\u00f3rnvalda til ranns\u00f3kna og \u00fer\u00f3unarstarfa \u00ed \u00fe\u00e1gu greinarinnar undanfarin \u00e1r.&nbsp; E\u00f0lilegt ver\u00f0ur a\u00f0 teljast a\u00f0 \u00far \u00fev\u00ed s\u00e9 b\u00e6tt.<\/p>\n\n\n\n<p><em>Greinarger\u00f0<\/em><\/p>\n\n\n\n<p>\u00c1 \u00e1rinu 2004 t\u00f3k Hagfr\u00e6\u00f0istofnun H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands saman vi\u00f0amikla sk\u00fdrslu um ver\u00f0m\u00e6ti stangvei\u00f0i \u00ed \u00e1m og v\u00f6tnum. \u00cd sk\u00fdrslunni kom m.a. fram a\u00f0 um 55 &#8211; 60 \u00fe\u00fasund \u00cdslendingar stunda stangvei\u00f0i \u00ed \u00e1m og v\u00f6tnum og a\u00f0 hinga\u00f0 s\u00e6kja um 5 \u00fe\u00fasund erlendir vei\u00f0imenn \u00e1rlega. Heildarvelta au\u00f0lindarinnar er um 7 milljar\u00f0ar \u00e1 \u00e1ri og beint \u00e1rlegt framlag hennar \u00e1 milli 2,6 og 3,2 milljar\u00f0ar. \u00cd landinu eru um 2000 vei\u00f0ir\u00e9ttarhafar sem eiga a\u00f0ild a\u00f0 vei\u00f0if\u00e9l\u00f6gum. Flestir vei\u00f0ir\u00e9ttarhafar eru b\u00e6ndur. \u00c1 Vesturlandi eru tekjur \u00feeirra t.d. um helmingur af heildartekjum landb\u00fana\u00f0ar. Vei\u00f0in\u00fdting sty\u00f0ur vi\u00f0 um 1200 st\u00f6rf sem flest eru unnin \u00e1 landsbygg\u00f0inni og er greinin vi\u00f0amikill hlekkur \u00ed afkomu landb\u00fana\u00f0ar og stu\u00f0ningur vi\u00f0 bygg\u00f0.&nbsp; Jafnframt kom fram a\u00f0 v\u00e6gi fiskr\u00e6ktar hefur veri\u00f0 umtalsvert og a\u00f0 um \u00fdmiskonar s\u00f3knarf\u00e6ri er a\u00f0 r\u00e6\u00f0a er enn g\u00e6ti auki\u00f0 ar\u00f0semi og tekjur af vei\u00f0in\u00fdtingu.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00cd sk\u00fdrslu Vei\u00f0im\u00e1lastofnunar sem einnig kom \u00fat \u00e1 \u00e1rinu 2004, um l\u00edffr\u00e6\u00f0ilega st\u00f6\u00f0u lax- og silungastofna, kemur fram a\u00f0 \u00e1stand \u00feeirra hefur almennt s\u00e9\u00f0 veri\u00f0 \u00ed g\u00f3\u00f0u lagi h\u00e9r \u00e1 landi og n\u00fdting innan \u00feeirra marka a\u00f0 h\u00fan geti talist sj\u00e1lfb\u00e6r. Vei\u00f0im\u00e1lastofnun rekur \u00fear jafnframt \u00fdmsar breytingar sem or\u00f0i\u00f0 hafa \u00e1 s\u00ed\u00f0ustu \u00e1rum svo sem st\u00f6\u00f0uga f\u00e6kkun st\u00f3rlaxa og yngingu sei\u00f0a \u00ed \u00e1m. F\u00e6kkun st\u00f3rlaxa kemur ni\u00f0ur \u00e1 hrognafj\u00f6lda og g\u00e6ti, ef fram heldur, leitt til \u00feess a\u00f0 hrygning ver\u00f0i takmarkandi \u00fe\u00e1ttur var\u00f0andi stofnst\u00e6r\u00f0 og afkomu laxastofna. Ef stofnar minnka miki\u00f0 getur teki\u00f0 langan t\u00edma a\u00f0 byggja \u00fe\u00e1 aftur upp \u00ed fyrri st\u00e6r\u00f0 og myndi sl\u00edkt kalla \u00e1 takm\u00f6rkun s\u00f3knar.&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p>R\u00e1\u00f0gj\u00f6f \u00e1 hverjum t\u00edma getur ekki veri\u00f0 betri enn s\u00e1 \u00feekkingargrunnur sem byggt er \u00e1. N\u00fdtingu n\u00e1tt\u00faruau\u00f0linda \u00ed breytilegu umhverfi eins og er h\u00e9r \u00e1 landi kallar eftir skipulegum og \u00f6flugum grunnranns\u00f3knum sem n\u00fdst geta au\u00f0lindinni \u00ed heild sinni.&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p><strong>VII<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p><strong>Endursko\u00f0un laxvei\u00f0ilaga &nbsp;<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p>A\u00f0alfundur Landssambands vei\u00f0if\u00e9laga,haldinn \u00ed Borgarnesi dagana 10. \u2013 11. j\u00fan\u00ed 2005, \u00feakkar endursko\u00f0unarnefnd lax- og silungsvei\u00f0ilaganna v\u00f6ndu\u00f0 vinnubr\u00f6g\u00f0, sem og \u00feau t\u00e6kif\u00e6ri er vei\u00f0if\u00e9l\u00f6gum landsins bj\u00f3\u00f0ast til a\u00f0 koma sj\u00f3narmi\u00f0um s\u00ednum \u00e1 framf\u00e6ri me\u00f0an \u00e1 vinnu vi\u00f0 \u00feetta mikilv\u00e6ga frumvarp stendur.<\/p>\n\n\n\n<p>Fundurinn hvetur \u00f6ll a\u00f0ildarf\u00e9l\u00f6g landssambandsins til a\u00f0 fara vandlega yfir framl\u00f6g\u00f0 frumvarpsdr\u00f6g og koma hugsanlegum athugasemdum s\u00ednum \u00e1 framf\u00e6ri, anna\u00f0hvort beint til nefndarinnar e\u00f0a til stj\u00f3rnar sambandsins.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00de\u00e1 felur fundurinn stj\u00f3rn Landssambandsins a\u00f0 vinna vel \u00far \u00feeim \u00e1bendingum, sem fram koma h\u00e9r \u00e1 fundinum, \u00e1samt \u00feeim atri\u00f0um er berast kunna fr\u00e1 a\u00f0ildarf\u00e9l\u00f6gunum s\u00ed\u00f0ar, og g\u00e6ta vel hagsmuna vei\u00f0ir\u00e9ttareigenda \u2013 h\u00e9r eftir sem hinga\u00f0 til &#8211; me\u00f0an \u00e1 samningu frumvarpsins og \u00feinglegri me\u00f0fer\u00f0 \u00feess stendur.<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>A\u00f0alfundur Landssambands vei\u00f0if\u00e9laga Borgarnesi 10. &#8211; 11. j\u00fan\u00ed 2005 \u00c1lyktanir sam\u00feykktar \u00e1 fundinum: I Tilm\u00e6li um a\u00f0 hl\u00edfa st\u00f3rlaxi A\u00f0alfundur Landssambands vei\u00f0if\u00e9laga, haldinn \u00cd Borgarnesi dagana 10. &#8211; 11. j\u00fan\u00ed 2005, telur br\u00fdnt a\u00f0 g\u00e6ta var\u00fa\u00f0ar vegna hinnar miklu ni\u00f0ursveiflu sem veri\u00f0 hefur \u00ed endurheimtum \u00e1 st\u00f3rlaxi undanfari 20 \u00e1r.&nbsp; Fundurinn beinir \u00fev\u00ed til a\u00f0ildarf\u00e9laganna [&hellip;]<\/p>","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"om_disable_all_campaigns":false,"_mi_skip_tracking":false},"categories":[9],"tags":[],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/angling.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/8556"}],"collection":[{"href":"https:\/\/angling.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/angling.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/angling.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/angling.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=8556"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/angling.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/8556\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":10852,"href":"https:\/\/angling.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/8556\/revisions\/10852"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/angling.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=8556"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/angling.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=8556"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/angling.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=8556"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}